Russian Ark at Bakkus dec. 16th 10pm

Dec 16, 2009


Sýningastjóri Ennimánaskins að þessu sinni er Ragnheiður Kristín Pálsdóttir, sérleg áhugakona um rússneskar kvikmyndir. Ragnheiður bjó um tíma í Rússlandi og stúderaði rússneska sögu og tungumál. Myndin sem hún mun deila með gestum heitir Russian Ark frá árinu 2002 eftir leikstjórann Alexander Sokurov. Myndin er skotin í einni töku í vetrarhöllinni í Pétursborg sem hýsir Hermitage listasafnið. Áhorfandanum er boðið í ferðalag um safnið en um leið gegnum sögu Rússlands 300 ár aftur í tímann þar sem Katrín mikla, Pétur mikli og skáldið Púskin koma við sögu meðal annarra. Í myndinni eru tveir sögumenn sem eiga samtal; Rússi og franskur aristókrati að nafni Marquis. Marquis heimsótti Rússland árið 1893 og skrifaði um ferðalagið mikla bók. Í gegnum myndina, söguna og safnið eiga þeir samtal um Rússland ofl.

Myndin er mikið augnakonfekt og merkileg fyrir það að vera tekin í einu skoti en hafa samt mörg lög af merkingu. Hún er fallega tekin og andrúmloftið sérstakt. Myndin fékk mjög góða dóma og vakti athygli í Evrópu en náði ekki í gegn í Hollywood.