Ennimánaskin 5 – Wild Combination

March 14, 2010

Heimildarmyndin ‘Wild Combination’ eftir Matt Wolf frá árinu 2008 er á dagskrá ennimánaskins að þessu sinni. Hún segir frá lífshlaupi hins stórmerkilega og fjölbreytta tónlistarmanns Arthur Russell sem lést úr alnæmi árið 1992. Arthur var sellóleikari sem fékkst við framúrstefnulega nútímatónlist en brá einnig fyrir sér poppaðri tónlist og var meira að segja margrómaður diskó-upptökustjóri. Í myndinn ræðir Wolf jafnt við fjölskyldu Arthurs sem og samstarfsfólk og vini líkt og tónskáldið Philip Glass og stórbítnikinn Allen Ginsberg. Arthur strauk sem ungur maður á bítla- og blómatíma sjöunda áratugains að heiman til að kynna sér heimspeki búddista og bítnikka í San Francisco. Síðar hélt hann til New York þar sem hann varð hluti af mikilli framvarðasveit tilraunakenndra tónlistarmanna og tónlistarstjóri ‘The Kitchen’, aðalmiðstöðvar þessarar bylgju á áttunda áratugnum. Það er rétt á hinum síðustu árum, um 15 árum eftir dauða Arthur Russell, sem tónlist hans hefur brotið sér leið út fyrir þennan þrönga ramma tilraunatónlistarheimsins og með kvikmynd Matt Wolf fer hópur aðdáenda hans sístækkandi.

Það er myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson sem færir gestum þessa mynd um Arthur Russell. Davíð er óþarft að kynna fyrir gesti Bakkus.



Ennimánaskin 4 – Sans Soleil

January 19, 2010

Sýningarstjóri Ennismánaskins að þessu sinni er Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur. Myndin sem Tinna deilir með gestum Ennismánaskins heiter Sans Soleil frá árinu 1983 eftir hinn franska Chris Marker, einn merkasta heimildarmyndaleikstjóra síðustu aldar. Sans Soleil er eitt þekktasta verk Marker og að auki stórskemmtileg tilraun hans með heimildarmyndarformið þannig að myndina er einnig hægt að kalla huglæga ferðasögu, heimspekiessíu eða nokkurs konar mannfræðistúdíu. Hvað sem flokkuninni líður er Sans Soleil gullfallegt ferðalag bæði í tíma og rúmi sem varpar áhorfandanum á milli Japan, Guinea-Bissau, Íslands og San Fransisco. Myndin er þó öðru fremur stúdía og vangavelta í því hvernig maðurinn byggir og endurskapar minni sitt og hvernig utanaðkomandi þættir hafa áhrif á minnið.



Ben Frost

January 12, 2010


By the Throat

Ben Frost


Australian born/Icelandic based musician/composer/artist Ben Frost keeps on making a stir in 2010 with By the Throat, his 2009 album released by Bedroom Community. The album seems to have struck all the right chords of the abstract noise/outer limits bible The Wire that places Frost’s album at #9 in their list of the best albums of 2009 . Pitchfork, another gospel according to the alternative music lover, gives the album a 8.4 out of 10 and states that it “ might frighten on the first listen, and it might shock by the 12th. But, somewhere in between, Frost– both a compelling new musical dramaturge and arranger– might just show you the silver lining of all these fears.” Frost’s video “Forgetting you is like breathing water” from his 2007 album Theory of Machines was included in Rafskinna#1 and still evokes those same feelings of shiver and shock now as it did in the good old noughties.



Russian Ark at Bakkus dec. 16th 10pm

December 16, 2009

Sýningastjóri Ennimánaskins að þessu sinni er Ragnheiður Kristín Pálsdóttir, sérleg áhugakona um rússneskar kvikmyndir. Ragnheiður bjó um tíma í Rússlandi og stúderaði rússneska sögu og tungumál. Myndin sem hún mun deila með gestum heitir Russian Ark frá árinu 2002 eftir leikstjórann Alexander Sokurov. Myndin er skotin í einni töku í vetrarhöllinni í Pétursborg sem hýsir Hermitage listasafnið. Áhorfandanum er boðið í ferðalag um safnið en um leið gegnum sögu Rússlands 300 ár aftur í tímann þar sem Katrín mikla, Pétur mikli og skáldið Púskin koma við sögu meðal annarra. Í myndinni eru tveir sögumenn sem eiga samtal; Rússi og franskur aristókrati að nafni Marquis. Marquis heimsótti Rússland árið 1893 og skrifaði um ferðalagið mikla bók. Í gegnum myndina, söguna og safnið eiga þeir samtal um Rússland ofl.

Myndin er mikið augnakonfekt og merkileg fyrir það að vera tekin í einu skoti en hafa samt mörg lög af merkingu. Hún er fallega tekin og andrúmloftið sérstakt. Myndin fékk mjög góða dóma og vakti athygli í Evrópu en náði ekki í gegn í Hollywood.



The Berlin Launch

December 5, 2009

Thanks to all who came to our launch of issue nr.3 at WMF last night. It was a blast.


On the screens from left to right: Inga Birgisdóttir (nr.1 – Fish), Hjaltalín Live Performance (nr.2 – House) and Assume Vivid Astro Focus (nr.3 – Reflections).



Into Eternity wins at CPH:DOX

December 2, 2009

Michael Madsen, who’s short documentary city portraid Copenhagen Statistics is featured in Rafskinna nr.3 – Reflections, is the winner of Politikens Audience Awards at CPH:DOX 2009.

Get a glimps of the future which looks to us to be even better than it sounds:

Finland is building the world’s first final resting place for nuclear waste. The waste must be left untouched for at least 100.000 years, The builders must take into account climate change, natural disasters, human oblivion – and maybe worst of all – human curiosity. Into Eternity is a documentary vision on time and a group portrait of the pioneers planning for eternity and trying to figure out how best to communicate with an unknown future human race.

Captivating, wondrous and extremely frightening, this feature documentary takes viewers on a journey never seen before into the underworld and into the future.
Director: Michael Madsen
Magic Hour Films 2009

http://intoeternitythemovie.com/



Launch of Rafskinna nr.3 in Berlin

December 2, 2009

For those of you in Berlin tomorrow (3rd december 09) Rafskinna and Motto distribution will be launching Rafskinna’s 3rd issue Reflections at Home.
see following links:

http://www.mottodistribution.com/site/?p=3140

http://berlin.unlike.net/event_occurrences/107451-HOME-presents-RAFSKINNA