Ennimánaskin 4 – Sans Soleil
January 19, 2010Sýningarstjóri Ennismánaskins að þessu sinni er Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur. Myndin sem Tinna deilir með gestum Ennismánaskins heiter Sans Soleil frá árinu 1983 eftir hinn franska Chris Marker, einn merkasta heimildarmyndaleikstjóra síðustu aldar. Sans Soleil er eitt þekktasta verk Marker og að auki stórskemmtileg tilraun hans með heimildarmyndarformið þannig að myndina er einnig hægt að kalla huglæga ferðasögu, heimspekiessíu eða nokkurs konar mannfræðistúdíu. Hvað sem flokkuninni líður er Sans Soleil gullfallegt ferðalag bæði í tíma og rúmi sem varpar áhorfandanum á milli Japan, Guinea-Bissau, Íslands og San Fransisco. Myndin er þó öðru fremur stúdía og vangavelta í því hvernig maðurinn byggir og endurskapar minni sitt og hvernig utanaðkomandi þættir hafa áhrif á minnið.
