Ennimánaskin 5 – Wild Combination

March 14, 2010

Heimildarmyndin ‘Wild Combination’ eftir Matt Wolf frá árinu 2008 er á dagskrá ennimánaskins að þessu sinni. Hún segir frá lífshlaupi hins stórmerkilega og fjölbreytta tónlistarmanns Arthur Russell sem lést úr alnæmi árið 1992. Arthur var sellóleikari sem fékkst við framúrstefnulega nútímatónlist en brá einnig fyrir sér poppaðri tónlist og var meira að segja margrómaður diskó-upptökustjóri. Í myndinn ræðir Wolf jafnt við fjölskyldu Arthurs sem og samstarfsfólk og vini líkt og tónskáldið Philip Glass og stórbítnikinn Allen Ginsberg. Arthur strauk sem ungur maður á bítla- og blómatíma sjöunda áratugains að heiman til að kynna sér heimspeki búddista og bítnikka í San Francisco. Síðar hélt hann til New York þar sem hann varð hluti af mikilli framvarðasveit tilraunakenndra tónlistarmanna og tónlistarstjóri ‘The Kitchen’, aðalmiðstöðvar þessarar bylgju á áttunda áratugnum. Það er rétt á hinum síðustu árum, um 15 árum eftir dauða Arthur Russell, sem tónlist hans hefur brotið sér leið út fyrir þennan þrönga ramma tilraunatónlistarheimsins og með kvikmynd Matt Wolf fer hópur aðdáenda hans sístækkandi.

Það er myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson sem færir gestum þessa mynd um Arthur Russell. Davíð er óþarft að kynna fyrir gesti Bakkus.